Færsluflokkur: Bloggar

Bankarnir eiga að borga íslenskum almenningi til baka!!!

Af hverju er enginn íslenskur stjórnmálamaður sem tekur upp hanskann fyrir íslenska alþýðu eins og Brown gerir fyrir bretann. Það má samt ekki skilja þetta sem svo að mér finnist þetta skítseyði eitthvað merkilegur pappír, síður en svo. Megi þeir drullupésar Brown og Darling hafa vont bragð í munninum til æviloka!
mbl.is Þakkaði Brown fyrir að bjarga Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsti skemmtilegi fótboltaleikurinn á sögulegum tíma

Mér finnst fótbolti alveg óheyrilega leiðinlegur og ætlaði svo sannarlega ekki að horfa á þennan leik, en þegar ég skipti yfir á RÚV og sá stöðuna 5-0 þá festist ég í nokkrar mínútur yfir þessu og það komu fljótlega 2 mörk í viðbót. Við þetta varð ég svo forvitinn og spenntur að sjá hverjar lokatölur yrðu að ég sat yfir öllum seinni hálfleiknum líka. Frábær frammistaða hjá stelpunum okkar og vonandi að sama útreið bíði næstu mótherja líka :)
mbl.is Fáheyrðir yfirburðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessvegna heita þær augntennur

Það hlaut að vera eitthvað á bakvið þessa nafngift... það er þá bara spurning hvort það eigi ekki að henda nokkrum framtönnum í safamýrina og athuga hvort þær bæti gengi liðsins!
mbl.is Græddu tönn í auga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki í fyrsta skipti hjá þessum bjána...

Kanye West hefur gert þetta áður á EMA verðlaunahátíðinni, nema hvað að í það skipti var það vegna þess að hans eigin myndband vann ekki! 

Hér er myndband frá því atviki:  http://www.youtube.com/watch?v=QTJxj7a9-DA

Þessi maður er augljóslega algjört fífl! 

  


mbl.is Obama sagði Kanye West bjána
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband